Meðferð
Rótfylling
Sýkt taug er fjarlægð og rótin fyllt, svo tönnin haldist í stað þess að vera dregin út.
Hvað er þetta?
Taugin inni í tönninni er fjarlægð, rásirnar hreinsaðar og fylltar. Tönnin heldur sér áfram á sínum stað.
Fyrir hverja?
Fyrir þá sem eru með djúpa skemmd, ígerð eða viðvarandi verk í tönn.
Hvað gerist í heimsókninni?
- 1Deyfing og röntgenmynd.
- 2Tönnin einangruð með gúmmídúk.
- 3Taugin fjarlægð og rásir hreinsaðar.
- 4Rásirnar fylltar og tönnin lokuð.
- 5Króna sett á síðar ef tönnin er veikburða.
Er þetta sárt? Hvað með deyfingu?
Meðferðin er gerð í deyfingu. Flestir finna minna til á meðan en þeir gerðu áður en þeir komu.
Kostnaður
Verð fer eftir því hversu margar rætur tönnin hefur. Þú færð áætlun eftir skoðun.
Eftir meðferðina
Forðastu að bíta fast á tönnina þar til hún hefur verið endanlega lagfærð.
Algengar spurningar um þessa meðferð
Þarf alltaf krónu á eftir?
Oft já, sérstaklega á jaxla, því tönnin verður stökkari.
Hversu marga tíma tekur þetta?
Oftast einn til tvo.