Fara beint í efni
Útlit og fegrun

Postulínsskeljar

Þunnar postulínsskeljar framan á tennurnar til að laga lit, lögun eða lítil bil.

Hvað er þetta?

Þunn skel úr postulíni er límd framan á tönnina. Hún breytir lit og lögun án þess að mikið sé tekið af tönninni.

Fyrir hverja?

Fyrir þá sem eru ósáttir við lit, lögun eða smá bil milli framtanna.

Hvað gerist í heimsókninni?

  1. 1Skönnun og mynd af brosinu.
  2. 2Þú sérð tillögu að útkomu áður en nokkuð er gert.
  3. 3Lítið er slípað af yfirborði tannarinnar.
  4. 4Skeljarnar smíðaðar á tannsmíðaverkstæði.
  5. 5Þær eru mátaðar og límdar á.

Er þetta sárt? Hvað með deyfingu?

Yfirleitt lítið sem ekkert. Deyfing er í boði ef þú vilt.

Kostnaður

Verð er á hverja skel. Fjöldinn ræðst af því hversu margar tennur sjást þegar þú brosir.

Sjá greiðsluþátttöku

Eftir meðferðina

Forðastu að bíta í mjög hart fyrstu dagana. Skeljar þola ekki að naga ís eða opna umbúðir.

Algengar spurningar um þessa meðferð

Þarf að slípa mikið af tönninni?
Nei, yfirleitt mjög lítið — en það er óafturkræft.
Hversu lengi endast þær?
Með góðri umhirðu í mörg ár.