Fara beint í efni
Skoðun og forvarnir

Skoðun og tannhreinsun

Heildarskoðun, tannsteinshreinsun og yfirferð á því sem þarf að gera.

Hvað er þetta?

Skoðun þar sem farið er yfir tennur, tannhold og bit. Tannsteinn er hreinsaður og þú færð yfirlit yfir stöðuna.

Fyrir hverja?

Fyrir alla, að jafnaði einu sinni á ári. Líka fyrir þá sem hafa ekki komið lengi og vilja vita hvar þeir standa.

Hvað gerist í heimsókninni?

  1. 1Þú sest í stólinn og við förum yfir sjúkrasöguna.
  2. 2Tennur, tannhold og bit eru skoðuð.
  3. 3Röntgenmynd tekin ef þörf krefur.
  4. 4Tannsteinn hreinsaður og tennur pússaðar.
  5. 5Farið yfir niðurstöðuna og næstu skref.

Er þetta sárt? Hvað með deyfingu?

Skoðunin er ekki sár. Hreinsun getur verið viðkvæm við tannholdið; við getum deyft ef þú vilt.

Kostnaður

Verð miðast við venjulega skoðun með hreinsun. Ef meira þarf færðu áætlun áður en byrjað er.

Sjá greiðsluþátttöku

Eftir meðferðina

Þú getur borðað strax. Tannholdið getur verið aðeins viðkvæmt í einn dag.

Algengar spurningar um þessa meðferð

Hversu oft á að koma í skoðun?
Að jafnaði einu sinni á ári, oftar ef tannhold er viðkvæmt.
Er röntgenmynd alltaf tekin?
Nei, aðeins þegar hún bætir einhverju við skoðunina.